02.07.2008 14:37

Merkilegt!


Halló öllsömul.
Það hefði einhvern tímann ekki verið fréttnæmt að það kæmi rigning. En ég var bara fegin að það rigndi í gærkvöld og nótt. Það var allt orðið skrælnað. Rúmar þrjár vikur og ekki dropi úr lofti. En þessu fylgdi auðvitað rok og var svo hvasst í gær á hestamannamóti á Hellu að þar fuku tjöld og eyðilögðust tjaldvagnar.

En það spáir aftur blíðu um helgina. Og það um allt land. Jóhanna keyrði norður til Akureyrar í gær með tvo gutta með sér. Þar er að byrja fótboltamót. Garðar Ingi og Jenni vinur hans (sonur Inga Sumarliða) eru að fara í nokkurskonar fótboltaæfingabúðir og Jóhanna gistir hjá Lillý systir.
 
Ég var nú í símanum í gærkvöldi að fylgjast með því að þau kæmu heil á húfi norður... Erla Jóna og Ágúst voru líka á norðurleið og ég frétti af þeim í gegn um Jóhönnu. Þessar ömmur. Hann er líka í fótboltanum en var svo óheppinn að handleggsbrotna illa í leik fyrir hálfum mánuði. En mamma hans er með honum ásamt Hörpu Jóa Brands sem er með sinn strák og vonandi hefur Ágúst gaman að því að fylgjast með þó að hann geti ekki tekið þátt.

Ég var að elda handa strákunum í Fúsa í hádeginu. Þeir voru það margir heima en fara líklega upp í Búrfell í dag. Þar eru tveir að vinna núna. Vona bara að allt gangi vel hjá þeim. Þetta er nú svolítið glæfralegt að sjá þarna... En þeir eru með öll öryggistæki, líflínur ofl.

Læt þetta duga í dag. Líði ykkur sem best.
Silla í Heiðarbæ. 

Flettingar í dag: 93
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 101534
Samtals gestir: 20553
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 07:25:48