Færslur: 2007 Apríl

01.04.2007 20:59

I.april...


Jæja það er 1.apríl í dag. Ég hljóp ekkert april. En ég hef stundum gert það. Þegar ég var ca 12 ára hringdi Sigrún vinkona á Melabergi og bað mig að fara og gá að Lubba hundinum sínum, hann væri týndur. Ég segi henni að bíða í símanum og hleyp út í dyr hér í Nýlendu og kalla Lubbi Lubbi þó nokkra stund. En nei enginn Lubbi og ég í símann og segir þá ekki Sigrún 1.april la la. Ég varð HUNDfúl það man ég.

 Svo tókst Jóhönnu að láta mig hlaupa april daginn fyrir ferminguna sína. Hún fermdist 2.apríl 1989. Þetta var nú svona smá grín...
En við vorum í fermingarveislu hjá Þórunni Önnu í dag og þá hafa allir krakkarnir hjá Bjössa bróður fermst. Það var gaman að systur mínar Dabbý og Laufey gátu komið að norðan. Alltof sjaldan sem við hittumst. Thelma dóttir Dabbý var með. 
Í dag eru líka 10 ár frá því pabbi dó. Fljótur að líða tíminn.
Þegar við vorum á leiðinni heim í dag voru Óskar og Sólrún að koma og við stoppuðum til að bjóða þau velkomin úr sólinni. Þetta var að þeirra sögn alveg frábær ferð og frábrugðin því sem þau höfðu kynnst.

Við kíktum í heimsókn í Glaumbæinn í gærkvöld. Maddý og Gísli eru komin heim frá Flórida.
Nú fer að koma að þvi að bretta upp ermar í skipulagningu og matargerð. Ástrós fermist á fimmtudag.Úps..

Ég hef þetta ekki lengra í bili. Góða nótt..
Flettingar í dag: 185
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 101626
Samtals gestir: 20573
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 23:32:32