Blog records: 2011 N/A Blog|Month_7
31.07.2011 09:34
Aftur og aftur
Góðan daginn.
Nú er komið að því.
Eftir tveggja ára hlé ætla ég að fara að setja inn hér smá færslur af og til
Betri helmingurinn hefur oft verið að spyrja mig hvort ég ætlaði ekki að skrifa aftur á heimasíðuna mína..Í 3-4 ár var hún eins og nokkurskonar dagbók. En sú sem varð völd að því að ég fer af stað er hún Beggó..Ég lét hana fá linkinn að síðunni..en hún sagði mér að engar færslur fyndust..Það er rétt..þær gömlu eru reyndar hér til hægri.
Af okkur hér í sveitinni er allt gott að frétta. Við unum okkur stórvel hér og sjáum betur með hverju árinu að það var rétt ákvörðun sem við tókum haustið 2005. Hún var að selja í Sandgerði, flytja í bílskúrinn til Bjössa og byggja Heiðarbæinn hér í Nýlendugörðunum. Nú eru komin 4 ár síðan við fluttum í húsið okkar og þetta er stórkostlegur staður.
En við vinnum í Sandgerði. Þar er litla fyrirtæki fjölskyldunnar staðsett. Við erum enga stund að renna á milli.. Reyndar er orðin meiri eldneytiskostnaður..en það á við alla.
Ég er mikið meira úti og geng mikið. Hér er góður staður fyrir barnabörnin að koma og leika sér..Og viti menn þau leika sér úti líka eins og við í gamla daga..Það er eitthvað við umhverfið sem rekur stráka og stelpur út að leika.
Ég læt þetta duga í bili..En ég kem aftur og aftur og aftur.
Written by Silla
- 1
Today's page views: 514
Today's unique visitors: 214
Yesterday's page views: 58
Yesterday's unique visitors: 29
Total page views: 107152
Total unique visitors: 22995
Updated numbers: 16.5.2024 20:02:16