Færslur: 2008 Mars

26.03.2008 22:59

Eða hvað?


Já vor í lofti sagði ég á páskadag. Sennilega fullsnemmt eða hvað? Daginn eftir var allt hvítt á ný. En þetta er nú bara smá föl sem bráðnar jafnóðum. En það er nú frekar kalt og maður má víst ekki vera of bráðlátur með vorið!  En Lilja Kristín tengdadóttir var að fara frá okkur til Jóhönnu þar sem hún hefur oftast gist í þessari ferð.

Helgi Snær vildi fá að gista síðustu nóttina fyrir heimferð á loftinu og Þorteinn Grétar kemur á eftir til að gista. Sport að fá að gista í Heiðarbæ. Svo er von um að fá að fara í fínu tölvuna hans afa í fyrramálið og útbúa tónlistardæmi..eitthvað!  En þau fljúga heim til Danmerkur um miðjan dag á morgun.

Svo fara Maddý og Gísli til Flórida á mánudag. Gaman hjá þeim. Reyndar verður nóg að gera hjá þeim ef ég þekki þau rétt. Þau ætla að smíða skúr á lóðinni við húsið sitt í Appleton ave. Þau verða í fimm vikur og það verður farið að vora ..pottþétt þegar þau koma heim. En í Jacks er núna komið vor ..umm blómalykt!

Ég var á sóknarnefndarfundi í kvöld. Gott fyrir félagsmálafrík sem ég verð líklega að viðurkenna að ég sé að fylgjast með. Við Gunni og Sirrý fórum saman í dag til tengdamömmu til að ræða málin. Það er mikil breyting að Fúsi okkar skuli vera farinn... En lífið heldur áfram og tekur ekkert endilega mjúkum höndum á öllum.

En á morgun fer ég með mömmu í jarðarför. Kiddi fósturbróðir hennar og frændi verður jarðsettur, saddur lífdaga. Hann var 86 ára og kominn með Alsheimer. Konan hans hún Laufey dó í hitteðfyrra. Og það er misjafnt hvernig heilsan fer með fólk. Mamma er sem betur fer oftast eldhress.

En nú er Þorsteinn kominn og þarf smá athygli.
Lifið heil.
Silla í Heiðarbæ.
 

23.03.2008 20:37

Vor í lofti.

  
Jæja, sæl öll. Svei mér ef það er ekki vor í lofti. Við (old) settið vorum úti í allan dag að setja upp grindverk við neðra pallinn.. Það hefur góð áhrif á heilsuna að vera úti. Og svo fór ég eins og hreinsandi andi allt í kring um húsið með svartan plastpoka í eftirdragi. Það hefur safnast og fokið heilmikið rusl í þessum vetrarhremmingum sem við upplifðum síðasta hálfa árið eða meira.
 
Og fyndið hvað margir stoppa og horfa til okkar. Við erum sennilega smáskrítin í augum sumra. Að byggja hér úti í fámenninu! En þeir sem vita og sjá..... skilja að hér er paradís á jörð. .Kyrrðin, friðurinn, ölduniðurinn og fuglarnir sem eru að byrja að láta heyra frá sér.

En í síðasta pistli talaði ég um Útskálakirkju og fleira. Og vinur minn Hilmar Bragi leiðrétti mig LÍTILLEGA..Ég hef örugglega móðgað einhvern Garðmanninn þegar ég óvart kallaði Flösina Röst! En ég biðst forláts á fljótfærninni. Auðvitað Garðskagaflösin--Flösin. Og nú ætla ég að leiðrétta þetta og strika út svona Keflavíkurnafn eins og Röstina. En hvað um það. Þetta var í þriðja sinn sem ég kem í Flösina og þvílikt flott hjá þeim og henni Matthildi Ingvarsdóttir sem sér um veitingarnar. Hún er systir Sigga Ingvars hins eina sanna, rafvirkja og fyrrum sveitarstjórnarmanns..

Og nú tekur við skattaskýrslutími. Ég geri fjórar skýrslur þetta árið. Þetta er nú orðið lítið mál miðað við það sem áður var. Nú kemur mikið forskráð og allar upplýsingar á hreinu í bankauppgjörum. Fyrir svona 15-20 árum var þetta hrikaleg vinna. Skrifa allt niður (lánaafborganir) leggja svo saman og vera klár á öllum liðum sem ætti að draga frá og bæta við. Já þetta er lítið mál núna. Helst eins og hjá okkur hér í Heiðarbæ, byggingarskýrsla og svo ef fólk kaupir og selur fasteignir. Fínt hjá skattayfirvöldum að einfalda hlutina svona.

Í Mogganum í dag komu minningargreinar sem höfðu verið sendar inn um Fúsa tengdó. Bara fínar held ég. Veit ekki hvað ég á að segja ykkur um Jóhönnu K. Held að hún sé kannski að koma til sjálfs síns þessa daga. Þetta verður erfitt fyrir alla hlutaðeigandi. En hún vildi bara vera heima í dag þó við vildum fá hana í mat. En hér voru Jóhanna yngri og börn. Þau voru að fara og það var búin að vera hátíð og fjör á bæ...... 

En nú er páskadagur að kveldi kominn og ég óska ykkur öllum góðra stunda. Líði ykkur öllum sem best.
Kveðja úr Heiðarbæ.
Silla.

21.03.2008 20:15

Útskálakirkja og fleira...



Við fórum í messu í gær í Útskálakirkju. Það var verið að taka hana í notkun eftir allsherjar lagfæringar. Hún var byggð 1861 af Sigurði Sivertsen sem var þá prestur í Útskálaprestakalli. Þá náði prestakallið yfir miklu stærra svæði til að mynda Keflavík og Njarðvík. Biskupinn Sr. Karl Sigurbjörnsson prédikaði og svo sá Sr. Björn Sveinn auðvitað um athöfnina líka. Kirkjan er mjög fín og allt orðið miklu bjartara og skírara. Jón Hjálmarsson formaður sóknarnefndar og hans fólk hefur unnið gott verk. Einnig hafa Hollvinasamtökin og fleiri aðilar verið mikill styrkur. Eftir messu var kirkjugestum boðið i Flösina í kaffi og þar voru kirkjunni afhentar ýmsar góðar gjafir. 

En engin kirkja er samt fallegri í minum augum en Hvalsneskirkja. Henni hefur verið nokkuð vel við haldið en samt þarf nú að fara að huga að ýmsu. Í kirkjunni á Hvalsnesi hafa flestar athafnir okkar fjölskyldu farið fram. Allir krakkarnir okkar eru fermdir þar og fjögur þeirra hafa gift sig þar líka. Ég fermdist þar að sjálfsögðu. Ég man vel eftir þegar miklar lagfæringar voru gerðar á kirkjunni sennilega um 1960. Þá var fallegi turninn tekinn í gegn.

En að öðru..Fúsi ehf bauð í verk upp í Búrfellsvirkjun og fékk það. Okkur létti því alltaf þarf að hafa vinnu fram í tímann. Það voru sex aðilar sem buðu í verkið og þeir feðgar Fúsi og Gunni ásamt Erlu Jónu voru búin að liggja yfir tölum síðustu daga. Og það var frekar  taugastrekkjandi törn. Þetta verður 2-3 mánaða vinna hjá þeim. Og ég er ákveðin að fara og skoða aðstæður þarna upp frá þegar þeir byrja. Kannski verður hægt að kíkja við í Árnesi í kaffisopa.


Það er búin að vera blíða í dag. Bjössi var að taka myndir og setja inn á albúmið hjá sér. Hann er svo duglegur við það. Þau komu hér með honum Hlíf og Aron Darri. Kíkið inná hjá honum Bjössa ef ykkur langar að sjá dýra og mannamyndir af ýmsu tagi.

En lifið heil og gleðilega hátíð.
Silla 

18.03.2008 20:21

Auglýsingar.


Ekki veit ég hvað eða hver var að stríða mér í gær!! Smá saga.. ! Ég var að fara að senda inn tilkynningu í Morgunblaðið um lát Fúsa og var búin að skrifa það allt upp mjög skilmerkilega. En þegar ég komst í tölvuna í vinnunni til að senda hana, fann ég ekki rissblaðið. Leitaði meira að segja í ruslinu ..En OK bara hripa upp annað uppkast. Eitthvað skolaðist nú til því nafn eiginkonunnar, Jóhönnu féll niður..ææææ.  Ég hringdi í býtið í Moggann sem að sjálfsögðu lofaði að leiðrétta og ný tilkynning kemur í fyrramálið (vonandi rétt).

En hvar sem villan var upprunnin þá er þetta skondið. Því stríðnari mann en Fúsa tengdapabba hef ég ekki þekkt en Gunni kemur fast á hæla honum. Lilja tengdadóttir okkar frá D.K er á bílnum hans Gunna og hann er því bíllaus í augnablikinu. Hringir ekki karlinn minn í mig og spyr hvort ég eigi leið í Sandgerði . Hann sé nefnilega lagður af stað gangandi úr vinnunni og sé hjá Hólshúsi.

Jú ég átti von á Jóhönnu að sækja hluta barnahópsins sem var hér staddur, rétt strax og sagði að hún myndi taka hann upp. Já já hann hefði gott af því að ganga aðeins lengra en venjulega! En Jóhanna kom nýja Ósabotnaveginn úr vinnunni í Bónus og ég sendi hana í ofboði því sá gamli (nú Gunni) væri örugglega orðinn fótafúinn. 

En ekki hvað. Hann var enn í vinnunni og var sko að skrökva og gekk því enga heilsubótargöngu í dag  Ætli Báru frænku í LA og fleirum finnist þetta ekki líkt einhverjum! En annars er hálfgert spennufall hjá okkur öllum núna. Lilja Kristín og krakkarnir ætla að vera í viku í viðbót. Og ég held að börnin njóti þess líka. Eiríkur fór í gær út til Söndeborg því það er mikið að læra og ekki má slaka of mikið á.

En ég læt þetta duga í dag.
Kveðja úr Heiðarbæ.

15.03.2008 20:38

Að lokinni útför.


Jæja kæru lesendur mínir. Ég er mætt í bloggið aftur. Tengdapabbi var jarðsettur í dag. Og þvílík veðurblíða sem hann fékk og við öll. Við höfðum kaffi handa kirkjugestum hér heima í Heiðarbæ. Það voru hér um níutíu manns. Sennilega hafa verið um hundrað manns í kirkjunni sem tekur hundrað og fimm manns í sæti.

 Sirrý systir Gunna og einkadóttir Sigfúsar, Erla Jóna tengdadóttir mín og stelpurnar mínar lögðu saman krafta sína og bökuðu og smurðu. Og samtakamátturinn er það sem dugar.

Já, myndi nú einhverjir segja..Var þetta ekki í kyrrþei? Já og nei. Allir voru velkomnir og við fengum því kjarna vina og ættmenna sem gátu komist til þessarar hinstu samkomu hans Fúsa míns. Sigfús nafni hans, sonur minn söng með kórnum yfir afa sínum og þetta var góð stund. Við fengum líka góðan einsöngvara Guðmund Sigurðsson sem söng tvö lög og svo fallega Dýrðarsönginn með kórnum.

 Við erum öll í skýjunum yfir þessum fallega degi, því eitt sinn verða allir menn að deyja eins og Vilhjálmur heitinn söng. Og Sr. Björn Sveinn var mjög góður og allt var svo eðlilegt og látlaust hjá honum.

Eiríkur, Lilja og börnin komu frá Danmörku til að kveðja afa. Sr. Lilja hafði smá kyrrðarstund fyrir börnin í morgun. Það kemur sér vel að hafa prest í fjölskyldunni. Sum voru að upplifa sorgina í fyrsta sinn. Sáu á eftir afa sínum sem var þeim mjög kær öllum, enda mikill barnakarl..Afi!!

En ég læt þetta duga í bili. Eigið góðar stundir.
Silla.

09.03.2008 17:40

Bloggfrí.

Komið þið sæl lesendur Sillubloggs. Ég mun taka mér frí næstu daga frá skrifum. Tengdafaðir minn Sigfús Borgþórsson lést síðastliðna nótt. Hann fékk heilablóðfall og þetta tók ekki langan tíma hjá honum. En svona er nú lífið og ég mun hafa um nóg annað að hugsa á næstunni en að blogga.. Að hans ósk mun útförin fara fram í kyrrþei.
Kveðja úr Heiðarbæ.
Silla.

07.03.2008 11:27

Þorrinn og Góan.

 Hæ hæ.

Maddý sendi mér gamla vísu og fleira um Góuna. Og það er dálítið gaman að rifja þetta upp og hugsa um hvernig forfeðrum okkar tókst að komast af yfir langann veturinn.

Velkomin sértu Góa
og gakktu í bæinn.
Vertu ekki úti í vindinum
vorlangan daginn.

Fólk var oft orðið matarlítið á þessum tíma árs og máltækin lifa og segja sögu!  Hægt er að þreyja Þorrann og Góuna sagði einhver. En kerling ein kvað það óséð.. Því ekki er öll Góa úti enn, sagði hún. Við þekkjum þetta máltæki! Og svo vælum við yfir óveðri í hlýjum húsakynnum og flest með all nokkuð af fóðri í ísskápnum.

Annars er allt gott að frétta úr sveitinni. Strákarnir Garðar og Vilmundur gistu í nótt. Fóru þeir svo í skólann um leið og afi þeirra í vinnu. Mamma þeirra þurfti að fara svo snemma að opna búðina. Þau byrja snemma á föstudögum að fylla upp í Bónus. En hún er nýlega orðin aðstoðarverslunarstjóri þar. Hún er hörkudugleg..
 
Nóg var nú vinnan hjá henni áður og ekki minnkar álagið með þessu starfi. En hún þarf að sjá fyrir þrem börnum og það er heilmikið. Og það snýst nú ekki bara um föt eins og sumir halda, heldur fæði... húsnæði sem þarf að borga af og allt sem viðkemur heimili þar sem þarfirnar eru óteljandi. En allt gengur þetta upp með smá aðstoð.

Jæja læt þetta duga í bili.
Hafið það sem best.
Silla.



04.03.2008 20:46

Bleyta.. gönguferðir..og Færeyjar!


Jæja. Ekki er nú fyrr talað um fannfergi en komin er bleyta..Blaut bleyta. Við hjúin höfum gengið af okkur allt veður í tíu daga... EN nú fórum við ekki fet. Við eigum ekki góða regngalla og hefðum orðið eins og hundar á sundi og meira en það.
 
Í staðinn fór Gunni hamförum í vinnunni og ég fékk skúringaræði og tók allt í gegn svo svitinn lak..hm . En ég hreyfði ekki bílinn í dag og vona að þetta verði skárra á morgun. Ég var einmitt í gær að horfa á þátt í sjónvarpinu um hverju vatn gæti áorkað. Og ekki stóð á því í morgun..Regnið var í miklum ham.

En við fengum póst um helgina frá Gunnari Þór í Færeyjum. Hann er fluttur til Suðureyjar með spúsu sína...Skemmtilegt að hann er einmitt á Suðurey þar sem vinabær okkar Sandgerðinga er. Það er að segja Vogur (á íslensku).  En Gunni Þór og Stína  búa í næsta bæ sem heitir (á íslensku) Þvereyri!

Það býr gott fólk og skemmtilegt í Færeyjum. Allavega kynntist ég bara slíku fólki í ferðum okkar þangað. Við höfum komið þrisvar til Færeyja fyrir utan stopp með Norrænu á leið til Eiríks 2006. Fyrst fórum við á Ólafsvöku 1999 með Óskari og Sólrúnu og þá bara til Þórshafnar og nágrennis. Vorum þá í tíu daga.
 
Síðan fórum við vikuferð með Norrænu, bílinn var meðferðis og komum þeim sömu vinum okkar Sólrúnu og Óskari að óvörum í Vogi. Við vissum af þeim og létum vaða. Frábær heimsókn.. Það var árið 2001. Síðast heimsóttum við svo Vog í vinabæjarheimsókn með Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar árið 2005. Þá átti Boltafélagið þar stórafmæli. Hundrað ára afmæli. Það var velheppnuð heimsókn og gaman að það skuli vera komið á áframhaldandi samband.

Það væri svo margt hægt að segja um vini okkar í Færeyjum. Þeir eru rólegri en við (samt kátari). Það er kannski ekki alveg eins mikið lífsgæðakapphlaup þar og þeir eru áberandi gestrisnir..Kannski eins og Íslendingar voru hér áður. Og náttúran er svo nálægt þeim. Þegar við gistum fyrst í Þórshöfn 1999 voru hænur í garðinum og litla dóttirin í húsinu færði okkur egg í körfu..Ógleymanlegt.

En læt þennann Færeyjapistil duga í bili.
Kveðja úr Heiðarbæ.
Silla.

02.03.2008 19:45

FJÓRIR FLOTTIR.

 
Já það voru hér fjórir fínir strákar síðasta sólarhring. Garðar Ingi Guðmundsson(11) og Vilmundur Árni Vilhjálmsson bróðir hans(7). Ágúst Þór Sigfússon(11) og Jóhann Sveinbjörn Hannesson(6). Það var mikið fjör á bænum. Þeir komu seinni partinn í gær og voru umfram allt ákveðnir í að hafa það gott í sveitinni.

Þessir strákar eru synir þriggja systkina. Jóhönnu, Fúsa og Konný. Ágúst var nú hressastur við útiveruna og byrjaði á stóru snjóhúsi í dag. En þá versnaði veðrið og fór að skafa á húsið hans. Þeir tveir elstu Ágúst og Garðar sváfu uppi í nótt og spjölluðu sig í svefn á loftinu. Þeim fannst það notalegt og vilja svo gjarnan koma fljótt aftur. Afi grillaði fyrir okkur hópinn í gærkvöldi. Þá var veðrið gott en þegar við vöknuðum í morgun sáum við ekki út um gluggana fyrir snjó!

En það var horft á sjónvarpið og farið í tölvuleiki, telft og fleira gott. Meira að segja amma gamla komst varla að í tölvunni. En Gísli kom í hádeginu á gröfunni og mokaði frá snjóinn í innkeyrslunni. Ég sá að hann fór líka á hina bæina. Flottur!!  Þau Maddý voru með krúttmagakvöld í gær og nokkurn hóp af fólki.

Svo fóru drengirnir til síns heima í eftirmiðdaginn og við erum orðin ein í koti. Ég er að fara að horfa á uppáhaldsþáttinn minn í sjónvarpinu. Glæpinn! Það er tuttugasti og þar með síðasti þáttur og ég bíð spennt....Og ég sem horfi bara á fréttir eða því sem næst!

Segi þetta gott í bili. Hafið það sem best.
Kveðja Silla.

Es. Nú er kl. 21.30.. Þátturinn minn endaði með ósköpum en..Svei mér þá ef þeir ætla ekki að framleiða fleiri..Svo mörgu er ósvarað.. Er að ná mér niður! ....... 
  • 1
Flettingar í dag: 1157
Gestir í dag: 79
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 98915
Samtals gestir: 19901
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 11:13:52